![]() ![]() |
Við sendum ykkur okkar bestu óskir um gleðilegt ár og vonum að hundar og menn hafi það sem allra best að nýju ári. Í oktober síðast liðnum kom nýr einstaklingur til okkar og er það hann Erik (Always Proud To Be First). Hann er hvítur toy poodle hundur fæddur 31. Ágúst 2009 og hann er í alla staði alveg yndirslegur með alveg hreint frábært geðslag. Á síðustu sýningu (Nóv 2010) sýndum við 4. Schnauzera og svo Erik. Og var árangurinn alveg frábær. Áttum við Besta Hund Tegundar og Bestu Tík Tegundar og ekki nóg með það heldur einnig besta hvolp tegundar (6-9 mán). Erik fékk Ex, 1 sæti. Eins og sést hér hjá schnauzerdeildinni: Meistaraflokkur Opinflokkur - http://deildir.hrfi.is/schnauzer/grein.asp?nr=141
Það er einungis einn hvolpur eftir hjá okkur sem leitar að heimili. Hann er algjör sjarmi, þvílíkt lífsglaður og svei mér þá held ég að hann trúi því að heimurinn sé hans. Hann dregur nánast allt sem hann finnur með sér út í bakgarð, án þess þó að skemma, vill örugglega hafa óreglulega afstöðu á milli hluta. Okkur finnst hann bara skemmtilegur. Mér finnst samt heldur orðið tómlegt þó að enn sé svo sem nóg af hundum í húsinu. Þá er svo mikið líf með litlu hvolpa skottunum. En ætli að hundarnir okkar séu ekki orðnir svoldið fegnir að fá aftur sitt rótgróna líf án þess að þurfa að keppast um athygli við litla sæta hvolpa. Nú eru tveir strákar eftir og þeir bíða eftir að finna ný heimili. Búin að snyrta þá þannig að þeir eru orðnir alvöru litir snásar, bara sætir.
Jæja þá eru öll skottin búin hjá lækninum og voru rosa dugleg. Þar voru þau heilsufarsskoðuð, bólusett, örmerkt og ormahreinsuð. Sem sagt sæt og fín og tilbúin til fara á ný heimili. Freyja og Fjölnir eru farin á nýja heimilið sitt þar sem að þau eru svo heppin að eignast sömu fjölskylduna sem samanstendur af tveimur mennskum tvífætlingum og einum poodle fjórfætling sem meira að segja er líka ánægður með nýju börnin. Og næsta hvolpabarn sem fer af heiman er hún Fjóla litla sem mun fara á nýja heimilið sitt fyrsta júlí. Tíminn líður svo hratt, litlu skottin eru að verða sjö vikna. Við fórum í bíltúr með allan hópinn í dag og var ekki annað að sjá en þeim líkaði bara vel því þeir steinsofnuðu allir.Nú er maður á fullu að hjálpa þeim að upplifa sem flest og þeir ekkert smá forvitnir og áhugasamir. Í dag klippti ég klærnar á öllum hundunum sem eru 13 talsins hjá mér. Þetta var lengsti dagurinn hjá hvolpunum í úti veru, þeim finnst svo gaman að vera úti og veðrið ekkert smá gott til þess. Hér eru nýjar myndir af hvolpunum.
Til að sjá allar myndirnar sem hafa verið teknar af þessu goti smellið hér. Og fyrir áhugasama þá eru hérna vigtanirnar frá fæðingu til dagins í dag.
Og muna svo gestabókina Hvolparnir stækka og dafna vel, urðu fjagra vikna á föstudaginn og fluttir út úr svefnherberginu þar sem þeir fæddust og við höfum alltaf hvolpana fyrstu vikurnar. Svona fram að fjórðu viku eftir það þá koma hvolparnir fram, til að venjast öllum umgangi og hljóðum svo sem ryksugunni og pottaglamrinu. Þeir eru farnir að borða og eru alveg ótrúlega duglegir að fara út úr gotkassanum til að gera stykkin sín. Í gær fóru þeir út í fyrsta skipti ég setti þá út í litlu búri því það var svo heitt í sólinni og þar voru þeir bara í öruggu skjóli, það hvarlaði ekki að þeim að kíkja útur búrinu Fleiri myndir koma á næstu dögum, þeir eru að verða alveg ómótstæðilega sætir. Allir hvolparnir búnir að opna augun og mikið að gera við að æfa fótsporin, bara sætir. Búið að vera smá vesen á þeim, fengu einhverja magahveisu, litlu krílin en nú eru þau komin á fullt við að verða fjörboltar.
Fleiri myndir komnar inní mynda albúmið, smellið hér til að fara þangað. Og svo endilega kvitta fyrir komuna í gestabókina. Sjö hvolpar fæddir, fjórir hundar og þrjár tíkur, allir svart/silfur og heilsast þeim mjög vel. Hér eru myndir af krílunum. Það er langt um liðið síðan ég hef sett eitthvað inná síðuna, algjör trassaskapur. Enn hvað um það svo ég snúi mér að því að segja frá hundunum þá hafa þau það bara reglulega fínt öll. Og hafa sjaldan eða aldrei verið í jafn góðu formi og núna. hér er sko átak í gangi hvað varðar hreyfingu og mat. Meira segja vigtað ofan í þessi grey til þess að halda línunum í lagi, tja eða koma þeim í lag. Þau eru sko að verða flottust. Svo eru fréttir... Charlotta (Flækja) er hvolpafull og er hérna hjá okkur því hún ætlar að eiga hvolpana hjá okkur og vera með þá þar til að þeir fara á sín nýju heimili. Nú er að orðið gaman að horfa ofaní hvolpa kassann því það er að færast líf í hvolpana. Byrjaðir að staulast og leika aðeins hver við annan. Bætti við meira af myndum af þeim. Smellið hér og farið neðst í albúm til að sjá nýjustu myndirnar. Svo setti ég líka inn nýjustu vigtunar tölur af krúttunum.
Og eins og fram hefur komið þá tókum líka þátt í tveggja daga afmælis sýningu HRFÍ sem var núna helgina 22-23. Ágúst. Og sýndum fjóra af okkar hundum með glæsilegum árangri og fengu þau öll excellent. Er að vinna í að úbúa efni um allar sýningar sem við höfum tekið þátt í, svo ég kem til með að setja meira af þessari sýningu með því þegar það er tilbúið sem ætti að vera bráðlega. Og ættu þá myndir og annað um sýningar að verða komið á vefsíðuna þegar það er búið. Hvolparnir stækka og dafna vel. Þeir eru byrjaðir hægt og rólega að opna augun og voru kliptar klær á þeim í fyrsta skipti í gær, þar sem að þær voru orðnar þó nokkuð langar. Og bætti við nokkrum nýjum myndum sem teknar voru í gær af litlu krílunum.
Og nú er afmælissýning HRFÍ næstu helgi eins og auglýst er á forsíðunni hjá HRFÍ. Og við sýnum fjóra af okkar hundum, það er að segja: Gabríel, Birgittu, Flækju og Kötsju.
Ég setti inn fleiri myndir af hvolpunum inní mynda albúm. Rjóma bollurnar eru að þyngjast nokkuð jafnt og þétt eins og sést hér. Hann Gabríel okkar er orðinn íslenskur mestari eins og sjá má á meistara skjalinu hans hér. Svona til þess að leyfa ykkur að fylgjast með þyngdar breytingum hvolpana þá ákvað ég að útbúa þetta línurit. Þá eru komnar myndir af litlu krílunum inná myndir got E, svo er fæðinarþyngd og tími inná got. Svo er það auðvitað meiningin að vera dugleg að setja inn uppls. um hvolpana. Freydís búin að gjóta fimm hvolpum, tveimum tíkum og þremur hundum allir fæddir yfir tvöhundruð grömm sem sagt algjörir boltar. Hvolparnir þegar farnir að þyngjast sem lofar mjög góðu. Myndir ættu að koma alveg á næstu dögum.
Jæja, komið fullt af myndum inná vefsíðuna. Smellið hér eða farið inná Myndir hér til hliðar til þess að skoða þær. Væntalegt got hjá henni Freydísi minni í byrjun Ágúst.
Mynd af Freydísi þegar hún var sjálf hvolpur. Þann 9.Desember áttu Freydís og Gabríel sjö hvolpa, þar af fimm tíkur og tveir rakkar. Þetta eru svart/silfur hvolpar. Það verður mjög spennandi að sjá hvernig þessi pörun kemur til með að skila sér. Jæja núna eru hvolparnir orðnir 8.vikna og tilbúnir að fara á ný heimili. Það eru eftir 2.hundar einn svartur og hinn svartur og silfur og 1.svört tík semsagt 3 hvolpar eftir.þeir eru búnir að fara í fyrstu sprautuna fá örmerkinguna og ormahreinsun. Ég held að Dagmar dýralæknir hafi helst viljað eiga þau öll, því schnauzerar eru svo duglegir að þeir standa bara stilltir upp á borði og láta sprauturnar bara yfir sig ganga eins og þeir hafi ekkert annað gert sína stuttu ævi ALGJÖRAR HETJUR! 8.hvolpar fæddust þann 24.Mars,1.svartur rakki,þrír svartir og silfur,þrjár svartar tíkur og ein svört og silfur. |